
Stefna Merck Sharp & Dohme Ltd varðandi meðferð persónuupplýsinga á Netinu
Almennt. Meðferð persónuupplýsinga fer eftir ákvæðum laga um söfnun og meðferð persónuupplýsinga (Data Protection Act) frá 1998, en samkvæmt þeim er öryggi einstaklinga tryggt hvað varðar persónuupplýsingar.
Merck Sharp & Dohme Limited ("MSD") kappkostar að tryggja öryggi persónuupplýsinga og uppfylla skuldbindingar sínar skv. lögum um söfnun og meðferð persónuupplýsinga frá 1998.
Hér á eftir er gerð grein fyrir notkun upplýsinga sem safnað er þegar notendur skrá sig til notkunar á þjónustu MSD.
Upplýsingar sem safnað er og notkun þeirra.
Þegar notandi skráir sig í upphafi á vefsíðunni www.univadis.is svo og þegar hann velur þjónustuþátt er safnað persónuupplýsingum svo sem um nafn hans, netfang og sérgrein.
Ofangreindum upplýsingum er safnað í þeim tilgangi að geta unnið úr þeim og sent notendum efni sem höfðar til þeirra, t.d. greinar á viðkomandi áhugasviði, tilkynningar um ráðstefnur og menntunarkosti svo og til þess að þróa og efla þjónustuna.
Áskilinn er réttur til að koma upplýsingum um notendur á framfæri við Merck & Co., Inc. í Bandaríkjunum og dótturfyrirtæki MSD um allan heim. Upplýsingarnar geta einnig verið aðgengilegar fyrir fyrirtæki sem Merck á hlut í og fyrirtæki sem koma fram sem umboðsfyrirtæki Merck (t.d. fyrirtæki sem safna og vinna úr upplýsingum um notendur fyrir MSD og fyrirtæki sem verða við óskum notenda um frekari upplýsingar um vörur eða aðra þjónustuþætti MSD). Merck hefur gert samninga við fyrirtækin til að tryggja að þau noti upplýsingarnar eingöngu samkvæmt fyrirmælum frá Merck og á þann hátt sem samrýmist þessari stefnu. Einnig eru fyrirtækin látin undirrita trúnaðarsamning sem varnar þeim að miðla upplýsingunum til annarra, selja þær eða láta þær öðrum í té á annan hátt.
Það er ósk okkar að mega senda notendum upplýsingar í tölvupósti um þjónustu okkar, uppfærslur á vefsíðunni og aðrar vörur og þjónustuþætti MSD sem við teljum að viðkomandi kynni að hafa áhuga á. Verður þetta ekki gert nema notandinn gefi leyfi til þess á skráningareyðublaðinu.
Í þjónustuþáttum okkar kunna að vera krækjur yfir í aðrar vefsíður sem við stjórnum ekki. Meðhöndlun upplýsinga á þeim síðum sem krækjurnar veita aðgang að fellur ekki undir þessa yfirlýsingu og notendum ber að kynna sér viðkomandi síður til þess að átta sig á hvernig persónuupplýsingar eru notaðar þar.
Breytingar á persónuupplýsingum
Verði breyting á þegar skráðum persónuupplýsingum eru notendur vinsamlegast beðnir að sendar réttar upplýsingar á help@univadis.is
Ef spurningar vakna varðandi öryggisstefnu okkar eða ef eitthvað er óljóst, vinsamlegast sendið tölvupóst til help@univadis.is
